23.12. 2011
31.05 2011
Ég vil benda á nýja vefsíðu Sæluosta en hún er www.saeluostur.is
15.04. 2011
Matur úr héraði
Virki Þekkingarsetur býður til málþings á Gauksmýri, 28. Apríl 2011 kl. 13-17
Fundarstjóri: Elín R. Líndal stjórnarformaður Virkis Þekkingarseturs
13:00 - 13:10 Setning Sigurbjörg Jóhannesdóttir, formaður Byggðarráðs
Húnaþings vestra
13:10 - 13:40 Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Háskólinn á Hólum: Ferðaþjónusta sem bragð er að - straumar og stefnur í matarferðaþjónustu
13:40 - 14:10 Dominique Plédel. Jónsson, Slow Food: góður, hreinn og
sanngjarn matur
14:10 - 14:40 Matís Guðmundur J. Guðmundsson, Beint frá Býli: Staða og framtíð í sölu Beint frá býli
14:40 - 15:10 Þóra Valsdóttir, Matís: Vöruþróun og smáframleiðsla matvæla
Kaffihlé í 20 mínútur
15:30 - 15:45 Svanhildur Pálsdóttir, Hótel Varmahlíð: Skagfirska
Matarkistan og ég.
15:45 - 16:00 Stella J. A. Leví og Sæunn V. Sigvaldadóttir, Sæluostur
úr sveitinni
16:00 - 16:15 Gudrun Kloes og Kristín Jóhannesdóttir, Fjöruhlaðborð og Sviðamessa
16:15 - 16:30 Svava Lilja Magnúsdóttir, Brauð og Kökugerðin: Smábakarí á landsbyggðinni
16:30 - 16:45 Guðmundur Helgason, Matarvirki og Kjöthornið:
Matvælavinnsla - þekking í héraði
16:45 17:00 Pálína Fanney Skúladóttir, Spes Sveitamarkaður
Grillhlaðborð
Eftir málþingið ætlar Sveitasetrið Gauksmýri að taka forskot á sæluna og
bjóða upp á grillhlaðborð eins og það hefur verið með undanfarin sumur - við miklar vinsældir.
Óskað er eftir því að fólk panti á hlaðborðið í síðasta lagi 19.
apríl í síma 451 2927, eða hjá Virki Þekkingarsetri í síma 455 2525
Hlaðborðið hefst kl. 18:00.
Verð á mann kr. 4000,-
5.04. 2011
Þá er komið að því að síðasti súpufundur vetrarins verður haldinn á Hlöðunni, næstkomandi föstudag kl. 12:00. Selma Dögg Sigurjónsdóttir frá Nýsköpunarmiðstöð verður gestafyrirlesari fundarins.
Ekki draga það lengur að koma á fund, "næst" er runnið upp (fyrir ykkur sem hafið í vetur sagt "ég fer næst").
Við ætlum að halda þessum súpufundum áfram næsta vetur svo allar ábendingar eða óskir um gestafyrirlesara eru vel þegnar.
Hlöðusúpa og brauð á 500 kr fyrir gesti fundarins.
Allir velkomnir.
14.03. 2011
Því miður komst hún Selma Dögg ekki á súpufundinn vegna veðurs en hann Ólafur Árnason hljóp í skarðið og sagði frá starfsemi Selasetursins og framtíð þess sem er frekar björt verð ég að segja. Ákveðið var að Selma Dögg skyldi koma til okkar á næsta súpufund sem heldinn verður 8. apríl. Á eftir fundi ætlar hún að bjóða upp á handleiðslu fyrir þá sem það kjósa.
9.03. 2011
Súpufundur verður á Hlöðunni kaffihúsi föstudaginn 11. mars.
Hvað gerist á þessum súpufundum? Því ekki að koma og sjá sjálf/ur?
Selma Dögg Sigurjónsdóttir frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands kemur og
kynnir starfsemina.
Látum okkar ekki eftir liggja í að gera Húnaþing vestra að enn betri stað!
Súpan á 500.- kr
Allir velkomnir - þá meina ég ALLIR :-)
3.02. 2011
Kynningarfundurinn var mjög vel sóttur en rúmlega 50 gestir mættu á hann. Farskólinn afhenti fjarnámsstofunni fjarfundabúnað og fartölvur og undirritaður var samningur á milli Farskólans og Virkis Þekkingarseturs.
1. 02. 2011
Ég minni á kynningarfund Farskólans og Virkis Þekkingarseturs í dag á verkefninu Eflum byggð í Húnaþingi, en hann byrjar kl 17:30.
Ef þú gengur með frumkvöðlahugmynd í maganum sem þig langar til að framkvæma er um að gera að mæta á næsta súpufund Virkis Þekkingarseturs á Hlöðunni sem haldinn verður föstudaginn þann 11. febrúar. Gestur fundarins verður Sigurður Steingrímsson frá Impru Nýsköpunarmiðstöð.
19. 01. 2011
Gleðilegt ár öllsömul!
Virki Þekkingarsetur verður með súpufund á Hlöðunni næstkomandi föstudag milli kl. 12 og 13. Fulltrúi frá SSNV kemur og segir frá sterfseminni. Svo verður almennt spjall á eftir. Um að gera að koma a og fá sér súpu á 500 kr. og spjalla saman!
Þann 1. febrúar verður svo Farskólinn, í samstarfi við Virki, með kynningarfund á verkefninu Eflum Byggð í Húnaþingi. Fundurinn verður í fjarfundastofunni á Höfðabraut 6 og hefst hann kl. 17:30.
21. 12. 2010
Virki Þekkingarsetur óskar öllum safstarfsaðilum sem og íbúum í Húnaþingi vestra
Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Kærar þakkir fyrir árið sem er að líða.
9.12. 2010
Enginn súpufundur verður á vegum Virkis þennan mánuðinn vegna fyrirtækjafundar sveitarfélagsins. Ætli það sé ekki nóg að gera samt í þessum mánuði. :-)
Næsti súpufundur Virkis verður um miðjan janúar en hann verður auglýstur þegar nær dregur.
16.11. 2010
Á föstudaginn síðastliðinn var haldinn súpufundur á vegum Virkis. Markmið með þessum súpufundum er að fá kynningar á fyrirtækjum, stofnunum eða einstaka verkefnum og fá umræðu á meðal fólks á eftir. Með þessu kvikna vonandi hugmyndir að samstarfsverkefnum sem Virki Þekkingarsetur getur tekið þátt í eða hrint í framkvæmd. Fundurinn var alveg ágætlega sóttur þrátt fyrir hríðarveður.
Stefnt er að því að halda svona súpufundi einu sinni í mánuði í allan vetur.
11.10.2010
Á morgun, þriðjudaginn 12. október, kemur hópur kvenna í fyrirtækjaheimsókn á Hvammstanga. Það er tengslanet kvenna, Virkja Norðvestur konur, sem stendur fyrir heimsókninni. Meðal fyrirtækja sem heimsótt verða er Virki Þekkingarsetur. Hægt er að lesa nánar um þetta á heimasíðu Virkju; virkja.tengslanet.is
17. 09. 2010
Tilkynning frá Impru:
Sóknarbraut
Námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja
Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og sveitarfélögin Blönduósbæ , Skagaströnd og Húnaþing vestra kynna námskeiðið Sóknarbraut á Blönduósi og Hvammstanga. Sóknarbraut er hagnýtt námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja þar sem þátttakendur vinna með eigin hugmyndir eða fyrirtæki.
6.09.2010
Virki Þekkingarsetur er komið með lógó. Það var hún Þuríður Harpa hjá Nýprent á Sauðárkróki sem hannaði það fyrir okkur.
13.08.2010
Nú er búið að kynna Matarvirkið bæði hér í héraði sem og í nágrannasveitum.
Virki Þekkingarsetur var stofnað þann 27. apríl 2010.